Ný bloggsíða

Við Kristín vorum að opna nýja bloggsíðu þar sem við komum til með að verða með helstu fréttir af fjölskyldunni, þannig að ég kem ekki til með að setja meira nýtt efni hér inn.  Setjum myndir og fleira þar inn.  Slóðin á nýju síðuna er http://bakkavegur.blog.is/


Kominn tími á nýtt blogg.

Jæja, ekki búið að heyrast frá mér lengi, þannig að nú er kominn tími til.  Það er ýmislegt búið að gerast hjá okkur, og það helsta er að við erum flutt í Hnífsdalinn.  Það eru allir nokkuð ánægðir með lífið, sérstaklega Óskar, en það er eins og hann sé kominn í paradís ;)

Við Kristín erum bæði byrjuð í námi við Háskólann á Akureyri.  Hún þarf að mæta næstum alla virka daga í skólann, en ég bara tvo í viku, þannig að ég er að byrja að svipast um eftir einhverju til að vinna með.  Þarf samt að mæta norður einu sinni í mánuði samt.

Jæja, gott í bili :)


Fermingar

Fermingar eru aðal málið þessa dagana.  Elva Björg fermdist á síðustu helgi og Svanna fermist núna á helginni.  Það verður sem sé veisla fyrir Elvu á laugardaginn og Svönnu á sunnudaginn.  Reyndar verður Svanna með sína veislu í tvennu lagi, þ.e. að fyrri hlutinn verður kl.14 og seinni hlutinn kl.17.  Vona bara að sem flestir sjái sér fært að mæta Smile

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband