Bergvin
Við búum í Hnífsdal í dag og ætlum að vera þar áfram. Við erum, í aldursröð, Kristín, ég, Svanna, Óskar, Siggi, Bubbi, Gerður og Hilmar.
Kristín er Hafnfirðingur í húð og hár. Hún á 3 önnur börn. Helgu, Svavar og Elvu. Helga býr með Fúsa, manninum sínum, og Kristni syni sínum í Kópavogi. Svavar og Elva búa hjá pabba sínum.
Þrátt fyrir að ég telji mig Ísfirðing í húð og hár, þá er ég fæddur í Reykjavík í desember 1970.
Staðir sem ég hef búið á (í réttri röð): Ytri Njarðvík, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Reykjavík, Ísafjörður, Hnífsdalur, Ísafjörður, Hnífsdalur, Hafnarfjörður, Suðureyri, Ísafjörður, Akranes og svo í Hnífsdal núna. Hef sem sé stoppað stutt við allsstaðar nema á Ísafirði, wonder why .
Mitt augljósasta afrek er að eiga börnin mín sem ég hef gegnum tíðina dröslað með mér flest það sem ég hef farið. Leif fékk ég í forgjöf, en hann er fæddur 1988. Síðan kom Svanna 1994, Siggi 1996, Bubbi 1997, og loks Gerður 1999.
Þá að atvinnumálum. Þegar ég hætti á sjónum 2000 byrjaði ég að vinna sem verslunarstjóri hjá Bónus. Stoppaði þar í 6 ár, fór svo að vinna í álveri Norðuráls á Grundartanga, síðan í Hyrnunni í Borgarnesi, og núna stunda ég nám frá Háskólanum á Akureyri og á eftir að finna mér eitthvað að gera með því.
Ragna býr í Hafnarfirði og tekur krakkana öðru hvoru.
Leifur er búinn að vera að vinna á Húsafelli, en er núna að flytja til Reykjavíkur.